Helgarnámskeið á Íslandi · 28. til 30. ágúst 2026

Hundurinn segir þér alltaf sannleikann

Hann lýgur ekki og hann þykist ekki. Þú þarft bara að læra að hlusta.

  • Þrír dagar með Söru Halldórsdóttur, Norðurlandameistara 2010
  • Þú lærir að lesa hundinn þinn, ekki að skipa honum fyrir
  • Fyrir alla, líka þau sem eiga engan hund
Fullur salur af fólki á fyrsta námskeiði Söru á Íslandi
Sara við hlýðnivinnu með schäferhundi
Hundur sem vildi ekki fara aftur til eigandans
Sporvinna í rigningu
Fyrsta námskeiðið hennar á Íslandi, hlýðnivinna, hundurinn sem vildi ekki fara aftur til eigandans, og spor í rigningu.
4af 10pláss með hundi laus
Áhorfendapláss5 af 5
Skrá mig
2010Norðurlandameistari í vinnuhundaþjálfun
25 árí ræktun schäferhunda
HMkeppandi á heimsmeistaramóti
10 plássog ekki fleiri í einu
Hér byrjar það
Námskeiðið

Fyrst skiljum við hundinn. Svo vinnum við með honum.

Flest vandamál sem fólk kemur með eru ekki þjálfunarvandamál heldur misskilningur. Námskeiðið byrjar því á fræðunum á föstudagskvöldi og fer svo út undir bert loft alla helgina, þar sem hver þátttakandi vinnur með sinn eigin hund og sitt eigið verkefni.

01

Fræðin

Af hverju hundurinn gerir það sem hann gerir. Þarfir, streita, mörk og hvernig samband verður til.

  • Hvað hundurinn þarf raunverulega
  • Merki um streitu sem fólk missir af
  • Hvernig þú byggir traust
02

Verklega

Tveir heilir dagar utandyra uppi í Kjós. Þú kemur með þitt verkefni og ferð heim með plan sem virkar fyrir ykkur tvö.

  • Innkall, taumur og einbeiting
  • Óöryggi, viðbrögð og hvíld
  • Persónuleg endurgjöf frá Söru
03

Framhaldið

Sara býr í Svíþjóð en hættir ekki að fylgjast með. Þegar hún hefur hitt hundinn þinn getið þið haldið áfram á fjarfundi.

  • Teams tímar eftir námskeiðið
  • Hún þekkir hundinn, þú byrjar ekki upp á nýtt
  • Þú sendir myndband, hún svarar
Aðferðin

Þrennt sem allt hitt byggir á

Sara kennir ekki brellur og hún kennir ekki skipanir. Hún kennir þrennt, og þegar það er komið á sinn stað dettur flest annað í lag af sjálfu sér.

Þess vegna byrjum við á að hlusta

Hundurinn er alltaf að segja þér satt. Ef hann dregur í taumnum, ef hann nær ekki að slaka á, ef hann getur ekki litið af öðrum hundi, þá er það ekki þrjóska heldur svar.

Vandinn er nánast aldrei sá að hundurinn sé óhlýðinn. Vandinn er að við náum ekki alltaf að lesa það sem hann er að segja. Þess vegna byrjum við á að hlusta, ekki á að leiðrétta.

Fyrst skiljum við, svo þjálfum við

Þegar hegðunin sjálf er orðin verðlaunin

Flest þjálfun gengur út á að borga hundinum fyrir að gera rétt, með nammi, með bolta, með einhverju að utan. Það virkar alveg, á meðan þú átt nammið og á meðan ekkert meira spennandi er í gangi.

Markmiðið hér er annað. Að hundinum þyki einfaldlega gaman að vera í þessu ástandi, að ganga fallega við hlið þér, að halda einbeitingu, að vera rólegur. Þegar góð hegðun er orðin skemmtileg í sjálfu sér þarftu ekki lengur að borga fyrir hana. Þá er hún orðin hluti af hundinum en ekki brella sem hann sýnir þér.

Þess vegna endist þetta

Það er ekkert handrit

Sara mætir ekki með fyrirfram ákveðna dagskrá fyrir hvern hund. Hún vinnur með það sem gerist á staðnum, þarna og þá.

Og hún aðlagar ekki bara að hundinum heldur að þér. Fólk er ólíkt, við höfum ólíkt skap og ólíkt þol, og æfing sem virkar fyrir einn eiganda virkar alls ekki fyrir þann næsta. Hún horfir á ykkur bæði og finnur leiðina sem þið ráðið við.

Enginn tími fer í neitt sem á ekki við þig

Sara tengir línuna á milli þín og hundsins.

Það er í raun eina verkefnið. Allt hitt eru bara leiðir að því.

Dagskráin

Föstudagur til sunnudags, 28. til 30. ágúst

Fræðihlutinn á föstudagskvöldi er innifalinn í námskeiðinu. Verklega kennslan fer fram bæði laugardag og sunnudag, með pásum og nægum tíma fyrir hvern hund.

Föstudagur
28. ágúst
19:30 til 21:30

Fræðihlutinn

Tveir tímar þar sem Sara fer yfir hugmyndafræðina á bak við allt sem gert verður um helgina. Þetta kvöld er án hunda, svo þú getir hlustað í friði og spurt.

Án hundsInnifalið í námskeiðinuEinnig selt stakt á 9.500 kr
Laugardagur
29. ágúst
10:00 til 16:30

Verkleg kennsla, dagur eitt

Við byrjum á grunninum, utandyra uppi í Kjós. Hver þátttakandi fær sinn tíma með Söru og verkefni sem er sniðið að hundinum. Áhorfendur eru með allan daginn og mega spyrja að öllu.

Utandyra í KjósGrunnurinn og samskiptinInnkall og einbeitingHvíld og streitustjórnun
Sunnudagur
30. ágúst
10:00 til 16:30

Verkleg kennsla, dagur tvö

Við tökum það sem virkaði á laugardeginum og setjum það í raunverulegar aðstæður, með áreiti og truflunum. Dagurinn endar á því að hver og einn fær sitt eigið plan til að vinna eftir heima.

Áreiti og truflanirÞitt eigið æfingaplanSpurningar og samantekt

Verklega kennslan fer fram utandyra uppi í Kjós. Nákvæmt heimilisfang og leiðbeiningar fylgja með staðfestingunni sem þú færð í tölvupósti þegar þú skráir þig.

Fyrir hvern er þetta

Þú þarft ekki að vera komin langt

Sara heldur þessi námskeið líka í Svíþjóð og þar er sama reglan. Þau eru fyrir alla, sama hvort þú ert að byrja eða hefur verið í þessu í mörg ár, og kennslan er sniðin að hverjum og einum eftir því hvað hann þarf.

  • Þú þarft ekki að stunda IGPÞetta er ekki keppnisnámskeið. Aðferðin er sú sama hvort sem markmiðið er heimsmeistaramót eða rólegur göngutúr.
  • Þú þarft ekki reynsluByrjendur eru jafn velkomnir og þau sem hafa æft í mörg ár. Enginn er of langt frá byrjuninni.
  • Þú færð þína eigin kennsluKennslan er sniðin að þér og þínum hundi, ekki að hópnum. Þess vegna eru plássin fá.
  • Þú þarft ekki einu sinni hundHvort sem þú vilt betri tengingu, betri grunn eða einfaldlega læra meira, þá kemstu inn sem áhorfandi.

Sjáðu hvernig þetta lítur út

Stutt myndband frá Söru að störfum. Það segir meira um aðferðina en nokkur texti.

Horfa á myndbandið
Verð og pláss

10 hundar komast að, ekki fleiri

4 pláss með hundi eru laus og hópurinn fer ekki yfir 10. Áhorfendaplássin eru 5 og þau eru ekki plan B, margir læra meira af því að horfa á aðra vinna en með taum í hendinni. Þú getur komið báða dagana eða valið annan þeirra.

5 laus

Áhorfandi

Báðir dagarnir og fræðihlutinn
40.000 kr
með VSK
  • Fræðihlutinn á föstudagskvöldi innifalinn
  • Þú situr báða dagana og fylgist með allri kennslunni
  • Þú mátt spyrja Söru allan tímann
  • Öll námsgögnin fylgja
  • Þú sérð hluti sem þú sérð aldrei með taum í hendinni
5 af 5 plássum laus
Skrá mig sem áhorfanda
5 laus

Áhorfandi, einn dagur

Þú velur laugardag eða sunnudag
25.000 kr
með VSK
  • Þú velur hvorn daginn þú kemur
  • Þú fylgist með allri kennslu þann dag
  • Þú mátt spyrja Söru allan daginn
  • Öll námsgögnin fylgja
  • Fræðihlutann á föstudagskvöldi má bæta við á 9.500 kr
5 af 5 plássum laus
Skrá mig einn dag
4 laus

Með hundi

Allir þrír dagarnir, þú og hundurinn þinn
75.000 kr
með VSK
  • Fræðihlutinn á föstudagskvöldi innifalinn
  • Tveir heilir dagar af verklegri kennslu utandyra
  • Þinn tími með Söru, þú og hundurinn þinn
  • Persónulegt æfingaplan að námskeiði loknu
  • Forgangur á Teams tíma með Söru í framhaldinu
4 af 10 plássum laus
Skrá mig með hundinn

„Ég kom sjálfur sem áhorfandi í fyrra, án hunds, og græddi helling á því. Þú situr og horfir á aðra vinna með sína hunda og sérð hluti sem þú sérð aldrei þegar þú ert sjálf með taum í hendinni.“

GGunnar BjörnÁhorfandi á námskeiði hjá Söru

Öll verð eru með VSK. Greiðsla fer ekki fram hér. Þú skráir þig og færð sendan greiðsluseðil ásamt staðfestingu og staðsetningu. Næsta heimsókn Söru til Íslands verður auglýst hér.

Meðan Sara er á landinu

Tvær leiðir í viðbót, fyrir þau sem komast ekki alla helgina

Sara er á Íslandi í lok ágúst. Fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. tekur hún einkatíma í Sólheimakoti, og fræðihlutann á föstudagskvöldinu er hægt að kaupa stakan.

Einkatími með Söru

15.000 kr

Fimmtíu og fimm mínútur þar sem unnið er með þinn hund og þitt vandamál. Hvort sem það er innkall, taumur, óöryggi eða keppnisþjálfun. Þetta er líka leiðin til að opna á Teams tímana, því þegar Sara hefur hitt hundinn getur hún haldið áfram með ykkur að heiman.

Fimmtudagur 27. ágúst, 10:00 til 13:00, 14:00 til 17:00 og 18:30 til 21:00Föstudagur 28. ágúst, 09:00 til 17:00Í Sólheimakoti
Bóka einkatíma

Fyrirlestur, stakur

9.500 kr

Fræðihluti námskeiðsins á föstudagskvöldinu, seldur einn og sér. Tveir tímar án hunds þar sem Sara fer yfir hvernig hundar hugsa, hvað þeir þurfa og af hverju svo margt fer úrskeiðis án þess að nokkur ætli sér það. Ódýrasta leiðin til að heyra í henni.

Föstudagur 28. ágúst, 19:30 til 21:30Án hundsOpið öllum
Skrá mig á fyrirlestur
Sara Halldórsdóttir með schäferhund á æfingasvæði
Kennarinn

Sara Halldórsdóttir

Norðurlandameistari 2010Sænskur meistari og sæti í landsliðinuKennari við Hund-Sport SkolanÞjálfuð hjá TopDog í ÞýskalandiNæringarfræði hunda, SLU

Þann 19. september 2010 varð Sara Norðurlandameistari í IPO vinnuhundaþjálfun, því sem heitir í dag IGP, með tíkina sína ChaDe's Raya. Sama ár vann hún sænska meistaratitilinn og komst í sænska landsliðið. Hún hefur ræktað schäferhunda í 25 ár undir nafninu Gråmanns, keppt á heimsmeistaramóti vinnuhunda og þjálfað hjá TopDog í Þýskalandi. Í dag er hún viðurkenndur kennari við Hund-Sport Skolan í Svíþjóð, þar sem hún býr og starfar.

Hún kennir ekki brellur. Hún kennir fólki að lesa hundinn sinn, skilja hvað hann er að reyna að segja og bregðast við á þann hátt sem hundurinn skilur. Aðferðin er róleg, byggð á virðingu og hún virkar jafnt á hvolpinn sem er nýkominn heim og hundinn sem hefur verið erfiður í mörg ár.

Sara kemur til Íslands nokkrum sinnum á ári. Þess á milli fylgir hún eftir í gegnum fjarfundi, með fólki sem hún hefur hitt og hundum sem hún þekkir.

„Til þess að hundinum okkar líði vel og að samband okkar við hundinn sé gott verðum við hundeigendur að skilja hvaða þarfir hundurinn okkar hefur.“

Sara Halldórsdóttir
mblmbl.is · 19. september 2010Íslensk kona Norðurlandameistari í vinnuhundaþjálfunLesa fréttina
Framhaldið

Hún fer aftur til Svíþjóðar. Þú heldur samt áfram.

Stærsta ástæðan fyrir því að hundaþjálfun skilar sér ekki er sú að fólk er skilið eftir eitt eftir námskeiðið. Þess vegna heldur Sara áfram með þeim sem vilja, í gegnum fjarfundi. Skilyrðið er einfalt, hún þarf að hafa hitt hundinn þinn í eigin persónu að minnsta kosti einu sinni.

Skref eitt

Þið hittist einu sinni

Á námskeiðinu eða í einkatíma. Sara sér hundinn þinn með eigin augum, hvernig hann hreyfir sig, hvernig hann bregst við og hvernig þið tvö vinnið saman.

Skref tvö

Þið gerið planið

Þú ferð heim með æfingar sem eru sniðnar að ykkur. Ekki almennt námsefni heldur það sem á við þinn hund, á því stigi sem hann er á í dag.

Skref þrjú

Þið haldið áfram á Teams

Sara fylgir eftir á fjarfundi. Þú sýnir hvernig gengur, hún leiðréttir og gefur næstu skref. Hún þekkir hundinn, svo þú byrjar aldrei upp á nýtt.

Teams tímar eru bókaðir eftir námskeiðið og verð verður birt hér þegar það liggur fyrir. Þeir sem taka námskeiðið með hundi hafa forgang.
Sögurnar

Hundarnir og fólkið þeirra

Það skemmtilegasta við þessa vinnu eru ekki keppnirnar heldur hundarnir sem breytast, og fólkið sem finnur nýja leið að þeim. Hér söfnum við sögunum þeirra, sagðar af eigendunum sjálfum.

Brúnó að vinna hlutaleit á plægðum akri
B
Brúnó og Valur
Við mættum á fyrsta námskeiðið hjá Söru með Brúnó þegar hann var sex mánaða gamall. Hann var, og er enn, orkumikill og klár hundur.

Námskeiðin hjá Söru hafa nýst okkur mjög vel í allri hlýðnivinnu og skilað sér í ánægjulegri göngutúrum, auðveldari læknisheimsóknum og betra sambandi við hann.


Núna erum við svo að vinna í því að kynna hann fyrir hlutaleit, sem hefur farið mjög vel af stað.


Mæli eindregið með námskeiðunum fyrir alla sem vilja verða betri hundaeigendur. Það skilar sér ánægðari hundi sem er í góðu sambandi við eigendur sína.
Valur, eigandi Brúnó

Áttu svona sögu?

Ef þú hefur unnið með Söru og hundurinn þinn er annar í dag, þá viljum við heyra það. Sögurnar hjálpa næsta hundaeiganda að þora að byrja.

Senda söguna
Gott að vita

Praktísku atriðin, áður en þú skráir þig

Ekkert af þessu á að koma þér á óvart á staðnum, þannig að hér er það allt saman.

01

Hvar

Verklega kennslan um helgina fer fram utandyra uppi í Kjós. Einkatímarnir fimmtudag og föstudag eru í Sólheimakoti.

  • Nákvæmt heimilisfang kemur með staðfestingunni
  • Kjósin er í stuttri akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu
  • Gott er að samnýta bíla, við hjálpum til við það
02

Hvað þú tekur með

Kennslan er utandyra alla helgina, í hvaða veðri sem er. Íslenskt sumar er ekki loforð um sól.

  • Föt eftir veðri og skó sem mega blotna
  • Taum, ól og það nammi sem hundurinn þinn elskar
  • Nesti og eitthvað að drekka fyrir ykkur bæði
  • Vatn og skál fyrir hundinn
03

Ef þú kemst ekki

Það er allt í lagi að hætta við, en plássin eru fá og einhver annar hefði getað fengið þitt.

  • Sjö dagar eða meira fyrir námskeið, allt endurgreitt
  • Þrír til sex dagar fyrir, helmingurinn endurgreiddur
  • Tveir dagar eða minna, ekki endurgreitt, en þú mátt gefa plássið áfram til einhvers annars
  • Ef Sara þarf að fella niður fæst allt endurgreitt
04

Hvernig skráningin virkar

Þú skráir þig hér á síðunni. Engin greiðsla fer fram í gegnum síðuna sjálfa.

  • Þú færð staðfestingu í tölvupósti
  • Greiðsluupplýsingar fylgja með í sama pósti
  • Heimilisfang og leiðbeiningar fylgja líka
  • Sara les það sem þú skrifar áður en hún mætir
  • Upplýsingarnar þínar eru aðeins notaðar vegna námskeiðsins
Skráning

Tryggðu þér pláss

Engin greiðsla fer fram hér. Þú skráir þig, við staðfestum plássið í tölvupósti og sendum greiðsluupplýsingar og staðsetningu með.

Engin greiðsla fer fram hér á síðunni. Greiðsluupplýsingar fylgja með staðfestingunni. Sjá persónuverndarstefnu.

Viltu kynnast nýrri hlið á hundinum þínum?

4 pláss með hundi standa eftir og 5 áhorfendapláss. Sara kemur til Íslands nokkrum sinnum á ári og námskeiðin fyllast, þannig að það borgar sig að taka plássið núna og spyrja spurninganna á eftir.

Tryggja pláss
Sara gengur með schäferhund við hlið sér